Njálgur
Njálgur - Upplýsingar til foreldra
Algengasta smitleið er frá fingrum upp í munn.
Einkenni:
- Kláði við endaþarmsop (mest áberandi þegar barnið er komið undir sæng á kvöldin)
- Svefntruflanir
- Erting í leggöngum
- Lystarleysi
- Eirðarleysi
Njálgur er stundum einkennalaus.
Greining:
- Felst í því að finna orma og/eða egg við endaþarmsopið. Ormarnir sjást með berum augum eins og litlir hvítir þræðir við svæðið kringum opið og einnig í saur.
- Best er að skoða endaþarmsopið þegar barnið finnur fyrir einkennum og nota til þess vasaljós. Hægt er að setja límband við endaþarminn og þá festast eggin á og hægt er að staðfesta smit með rannsókn ef þörf er á.
Meðferð:
- Tvö lyf er hægt að nota við meðhöndlun á njálg, annað er selt í lausasölu en hitt er lyfseðilsskylt.
- Meðhöndla þarf alla fjölskylduna.
- Handþvottur mjög mikilvægur, sérstaklega eftir salernisferðir og fyrir mat.
- Almennt hreinlæti, tíðari þvottur á salerni, krönum, baðkörum, hurðarhúnum og leikföngum.
- Klippa neglur vel því þá festast eggin síður undir þeim.
- Þvo föt og rúmföt við minnst 60°hita.
- Dagleg nærfataskipti.
Hvað er hægt að gera til að forðast njálg?
- Almennt hreinlæti; handþvottur mjög mikilvægur.
- Forðast að vera með hendur upp í munni og setja leikföng og annað upp í munninn.
- Reglulegur þvottur á leikföngum