Gallstasi á meðgöngu
Gallstasi á meðgöngu kallast Intrahepatic Cholestasis of Pregnancy eða Obstetric Cholestasis á ensku.
Gallstasi á meðgöngu er sjaldgæfur sjúkdómur sem hefur áhrif á starfsemi lifrarinnar. Gallsýrur flæða venjulega frá lifrinni og hafa það hlutverk að hjálpa til við meltingu. Ef þetta flæði er hindrað safnast gallsýrurnar upp í blóði móður og valda einkennum.
Kláði er eitt aðaleinkennið. Sjúkdómurinn greinist oftast á síðasta þriðjungi meðgöngu.
Ef kláði er til staðar eða ef hann versnar er ástæða til þess að ræða það við ljósmóður eða lækni
Hver eru helstu einkenni gallstasa?
Kláði er aðaleinkenni gallstasa á meðgöngu og stundum eina einkennið.
Oft er um mikinn kláða að ræða en þó getur hann verið mismikill. Talið er að kláðinn stafi af hækkun á gallsýrum í blóði móður. Kláðinn byrjar oft í lófum og iljum en getur verið dreifður um líkamann, jafnvel á augnlokum og í munnholi. Hann getur verið verstur á nóttunni og það hefur áhrif á svefninn og margar konur tjá vanlíðan og þreytu.
Í alvarlegri tilvikum geta einkenni einnig verið gula, dökkt þvag og niðurgangur/fituskita (ljósar eða gráar hægðir). Sjúkdómseinkennin ganga alltaf til baka eftir fæðingu, oftast á örfáum dögum.
Hvað veldur gallstasa á meðgöngu?
Ekki er alveg vitað hvað veldur gallstasa á meðgöngu en talið er að erfðir og umhverfisþættir eða undirliggjandi heilsufarslegir þættir geti valdið sjúkdómnum.
Hvernig er gallstasi greindur?
Læknirinn/ljósmóðirin fær góða lýsingu á kláðanum og öðrum einkennum. Húðsjúkdómar eða aðrir hugsanlegir orsakaþættir eru útilokaðir.
Boðin er blóðprufa til þess að mæla magn gallsýra í blóði móður og þarf móðirin að fasta í 8 klukkustundir áður en hún er tekin. Ef gallsýrur eru yfir eðlilegum mörkum bendir það til gallstasa.
Fleiri rannsóknir getur þurft að gera áður en hægt er að staðfesta greiningu.
Er einhver áhætta fyrir móðurina?
Enda þótt einkenni gallstasa á meðgöngu geti verið verulega óþægileg fyrir móðurina er áhætta vegna sjúkdómsins talin vera lítil. Í alvarlegustu tilvikum getur þó verið lítilsháttar hætta á mikilli blæðingu eftir fæðingu, sem hægt er að fyrirbyggja með K-vítamíni.
Er einhver áhætta fyrir barnið?
Ef sjúkdómurinn er á vægu stigi (lítil hækkun gallsýra í blóði móður) er barnið ekki talið í hættu.
Ef sjúkdómurinn er á alvarlegu stigi (mikil hækkun gallsýra í blóði móður) getur hann ógnað öryggi barnsins. Í þeim tilfellum þarf móðirin viðeigandi læknismeðferð. Hætta er á fósturstreitu, fyrirburafæðingu og í alvarlegustu tilfellum fósturdauða.
Hvaða meðferð er veitt við gallstasa?
Móðirin er undir nákvæmu eftirliti læknis og ljósmóður á meðgöngunni.
Ef mikil hækkun er á gallsýrum í blóði móður og/eða kláði er mikill er henni boðin meðferð með lyfjum. Markmiðið með lyfjameðferðinni er að lækka gallsýrur í blóði, minnka kláðann og tryggja sem best öryggi barnsins. Kláðastillandi lyf og svefnlyf eru einnig gefin ef þörf er á.
Fylgst er með magni gallsýra í blóði og einkennum hjá móður og stundum getur þurft að flýta fyrir fæðingu barnsins.
Hver er tíðni gallstasa á meðgöngu?
Tíðni gallstasa á meðgöngu er talin vera um 1-2%.
Ef kona hefur fengið gallstasa einu sinni á meðgöngu eru líkur á því að það endurtaki sig á næstu meðgöngu.
Nokkur ráð við kláða
- Nota kælikrem eða rakakrem sem bera má á húð nokkrum sinnum á dag, alltaf eftir bað og fyrir svefn.
- Klippa neglur til að minnka líkur á húðklóri og nota frekar lófana til að nudda húðina þar sem kláðinn er mikill.
- Koma í veg fyrir svitamyndun með því að klæðast fötum úr náttúrulegum efnum t.d. bómull eða silki fremur en gerviefnum.
- Klæðast víðum fötum fremur en þröngum.
- Sofa með þunna ábreiðu fremur en þykka ábreiðu eða dúnsæng.
- Sofa við gott loft og ekki mikinn herbergishita.
- Fara í volga/svala sturtu eða bað fremur en of heit böð.
- Takmarka daglega notkun sápu við handarkrika og nára og nota milda, lyktarlausa og ofnæmisprófaða sápu.
- Nota mild þvottaefni og skola vel allan þvott sem kemst í snertingu við húð.
- Forðast kaffi og aðra heita drykki.
- Kláðastillandi lyf t.d. Tavegyl eða Polaramin skv. læknisráði.
- Svefnlyf skv. læknisráði ef kláði truflar nætursvefninn.
Ef þú finnur fyrir kláða eða kláði fer versnandi er mikilvægt að láta vita af því í meðgönguverndinni.
Gott er að ræða við ljósmóðurina eða lækninn í meðgönguverndinni um líðan og hvað hægt er að gera til þess að bæta hana.
Mikilvægt er að gæta þess að fá nægilega hvíld og slökun.
Vefsíður um gallstasa á meðgöngu:
Royal College of Obstetricians and Gynaecologists www.rcog.org.uk/
The Obstetric Cholestasis Support website www.ocsupport.org.uk/
Itchy Moms http://itchymoms.com/
Grein: Intrahepatic cholestasis of pregnancy
Gallstasi á meðgöngu (pdf-skjal)
Gallstasi-Heimildir:
1. Fazio S.B. Pruritus. Official Reprint from UpToDate® maí 2008. Sótt í október 2008
2. Glantz A. og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy:
A Randomised Controlled Trial Comparing Dexamethasone and Ursodeoxycholic Acid. Hepatology 2005; 42:1399-1405
3. Glantz A. og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy. Relationships between bile acid levels and fetal complication rates. Hepatology 2004; 40:467-74
4. Lammert F. og fleiri: Intrahepatic cholestasis of pregnancy: molecular pathogenesis, diagnosis and management. Journal of Hepatology 2003; 33:1012-1021
5. NHS choices http://www.nhs.uk/Conditions/Itching/Pages/Treatment.aspx?url=Pages/What-is-it.aspx Sótt í október 2008.
6. Rapponen A. og fleiri: Intrahepatic Cholestasis of Pregnancy as an Indicator of Liver and Bilary Diseases: A Population-Based Study. Hepatology 2006; 43:723-728
7. RCOG Obstetric cholestasis (itching liver disorder):information for you http://www.rcog.org.uk/resources/public/pdf/obstetric_cholestasis_pi0407a.pdf Sótt í október 2008
8. Sandbjerg 2008. Leverbetinget graviditetsklöe. Danskar leiðbeiningar
9. Yannick B. Approach to liver disease occurring during pregnancy. Official Reprint from UpToDate® maí 2008. Sótt í október 2008
10. Þóra Steingrímsdóttir og fleiri: Gallastasi á meðgöngu. Vinnuleiðbeiningar. Miðstöð mæðraverndar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 2007
Höfundar: Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður og Þóra Steingrímsdóttir fæðingalæknir á mæðravernd Þróunarstofu.