Að verða maður með mönnum
Bæklingurinn Að verða maður með mönnum fjallar um þroska barna að tveggja ára aldri. Í bæklingnum er stutt lýsing á getu barnsins og hvernig má hvetja það til frekari dáða. Einnig eru gátlistar fyrir hvert aldurskeið.
Unnur Guttormsdóttir sem hefur 40 ára reynslu sem sjúkraþjálfari ungbarna tók saman. Miðstöð heilsuverndar barna og Landlæknisembættið gefa út.
Hægt er að skoða og prenta út bæklinginn í heild eða einstaka hluta hans.
Að verða maður með mönnum: um þroska barna að tveggja ára aldri: stutt lýsing á getu barnsins og hvernig má hvetja það til frekari dáða