Fyrsta gjöfin

Fyrsta gjöfin

Ef fæðing gengur vel er eðlilegt að barnið fari á brjóst í fyrsta sinn fljótlega eftir fæðingu. Þá er það vel vakandi og oft áfjáð í að sjúga. Hormónaflæði eykst þegar barnið er bert við húð móðurinnar sem hjálpar til við mjólkurlosun.

Ef verkjalyf voru notuð í fæðingunni getur fyrstu gjöfinni seinkað en aðalatriðið er að grípa tækifærið þegar barnið sýnir áhuga. Eftir keisarafæðingu eða ef barnið þarf að dveljast á vökudeild er mikilvægt að leggja barnið eins fljótt á brjóst og unnt er, að öðrum kosti er notuð mjaltavél.

 

Það er enginn fæddur með þá kunnáttu hvernig best er að leggja á brjóst, það krefst þjálfunar sem kemur fljótt á fyrstu vikunum


Yfirfarið: Í ágúst 2008.
Höfundar: Karítas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann, ljósmæður Miðstöð mæðraverndar. 


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;