Forvarnarskoðun
Í gildi er samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og fjölda tannlækna um forvarnarskoðanir þriggja, sex og tólf ára barna. Skoðunin er greidd að fullu ef hún fer fram meðan börn eru á þessum aldri.
Forvarnarskoðun felur í sér viðtal, fræðslu, tannhreinsun, skáningu og flúormeðferð, auk röntgenmyndatöku fyrir tólf ára hópinn. Tannviðgerðir falla ekki undir þennan samning.