Hér má sjá yfirlit yfir skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd eftir mismunandi aldri:
| Aldur | Hver skoðar | Hvað er gert |
|---|---|---|
| <6 vikna | Hjúkrunarfr. | Heimavitjanir |
| 6 vikna | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun |
| 9 vikna | Hjúkrunarfr. | Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð |
| 3 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu |
| 5 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu |
| 6 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C |
| 8 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C |
| 10 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun |
| 12 mánaða | Hjúkrunarfr. | Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu |
| 18 mánaða | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna |
| 2 1/2 árs | Hjúkrunarfr. og læknir | Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun |
| 4 ára | Hjúkrunarfr. | Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun, á þessu aldursskeiði er barnið bólusett gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu |
Ung- og smábarnavernd styðst við handbókina Ung- og smábarnavernd - Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0-5 ára sem Landlæknisembættið gefur út. Handbókin er ætluð fagfólki en er einnig mjög gagnleg fyrir foreldra ungra barna. Eingöngu er um rafræna útgáfu að ræða og er hún á vef Landlæknisembættisins. Þar er líka að finna ítarefni og hægt að skoða einstaka kafla handbókarinnar.
Nánari upplýsingar um ung- og smábarnavernd má fá á síðum Ung- og smábarnaverndarsviðs Þróunarstofu heilsugæslunnar.