Heilsugæslan Fjörður þjónar íbúum Hafnarfjarðar og Álftaness.
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina meðan ekki er fullskráð hjá læknum stöðvarinnar. Þú kemur á stöðina og fyllir út umsóknareyðublað sem liggur frammi í afgreiðslunni. Þá mun upplýsingum um heilsufar þitt verða safnað hjá þeim læknum sem þú hefur áður leitað til.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
Lyfjaendurnýjanir eru í síma 540-9490 frá kl. 8:30 til 11:30 alla morgna.
Hjúkrunarráðgjöf er frá kl. 8:00 til 18:00 alla virka daga.
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.