Heilsugæslan Sólvangi þjónar íbúum Hafnarfjarðar og Álftaness.
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina. Þú kemur á stöðina og fyllir út umsóknareyðublað. Þá mun upplýsingum um heilsufar þitt verða safnað hjá þeim þeim læknum sem þú hefur áður leitað til.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
Unnt er að fá símasamband við hjúkrunarfræðing með fyrirspurnir og í bráðaerindum, samdægurs og án fyrirvara. Hjúkrunarfræðingar geta gefið bráðatíma hjá þínum heimilislækni. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Læknar og hjúkrunarfræðingar fara í vitjanir heim til sjúklinga ef veikindin eru þess eðlis að viðkomandi kemst ekki á heilsugæslustöðina.
Utan opnunartíma geta skjólstæðingar stöðvarinnar leitað til Læknavaktarinnar í Smáranum. Sími: 1770.
- Rannsóknastofan er opin frá kl. 8:00 til 11:00
- Yfirlæknir: Emil L. Sigurðsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Kristín Pálsdóttir
- Skrifstofustjóri: Þórunn Sigurðardóttir
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.