Heilsugæslan Hvammi er hverfisstöð og er fyrst og fremst ætlað að þjóna íbúum Kópavogs sem búa austan Digranesvegar og Bröttubrekku, sunnan Kópavogslækjar (Fífuhvamms) og sunnan Nýbýlavegar (með Hólmum).
Ef þú býrð á þjónustusvæðinu getur þú skráð þig á stöðina. Skráning fer fram hjá móttökuriturum.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Yfirlæknir: Sigurður V. Guðjónsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Sigríður A. Pálmadóttir
- Hjúkrunarstjóri: Ástþóra Kristinsdóttir
- Skrifstofustjóri: Guðbjörg Guðmundsdóttir
Tímapantanir alla virka daga frá kl. 8:00 til 17:00 í síma 594-0400.
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.
23.04.2010
Áhrif gosösku á heilsufar og viðbúnaður vegna öskufalls
Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá öndunarfærum og augum. Hér eru tveir nýjir bæklingar með ráðleggingum til fólks þar sem öskufalls gætir.25.05.2009
Heilsugæslan Hvammi er 10 ára í dag 25. maí
Fyrsta skóflustungan að húsinu var tekinn árið 1994 og það var afhent tilbúið árið 1998. Formleg opnun var þó ekki fyrr en 25. maí 1999.