Heilsugæslan Glæsibæ er hverfisstöð sem þjónar íbúum Voga- og Heimahverfis. Hún hóf starfsemi 20 janúar 2006.
Hlutverk heilsugæslunnar er að veita íbúum hverfisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Heilsugæslan í Glæsibæ leggur áherslum á rafræna sjúkraskrá og rafræn samskipti.
Í afgreiðslu heilsugæslustöðvarinnar taka móttökuritarar við tímapöntunum, gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar og koma áríðandi skilaboðum til starfsfólks. Nauðsynlegt er að láta móttökuritara vita þegar mætt er í pantaðan tíma.
- Yfirlæknir: Kristján G. Guðmundsson
- Yfirhjúkrunarfræðingur: Sigrún K. Barkardóttir
- Skrifstofustjóri: Ingibjörg Halldórsdóttir
Síðdegisvakt er frá kl. 16:00 til 18:00 alla virka daga. Sumartími síðdegismóttöku er frá kl. 16:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga.
Símatími hjúkrunarfræðinga er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka.
Lyfjapantanir eru í síma 599-1304 frá kl. 10:30 til 12:00 alla virka daga.
Rannsóknastofan er opin frá kl.8:00 til 9:30 alla virka daga.
Ef um alvarleg slys eða lífshættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.
Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.
23.04.2010
Áhrif gosösku á heilsufar og viðbúnaður vegna öskufalls
Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá öndunarfærum og augum. Hér eru tveir nýjir bæklingar með ráðleggingum til fólks þar sem öskufalls gætir.28.05.2008
Tilraunaverkefni um þverfaglega samvinnu vegna málefna barna með hegðunar- og geðraskanir í Langholts- og Vogahverfi
Samstarfssamningur milli Heilsugæslunnar Glæsibæ, Barna- og unglingageðdeildar LSP og Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis var undirritaður 26. maí s.l.Heilsugæslan vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, gæðaáætlun heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytis frá 1999 og í framhaldi af því stefnumótun Heilsugæslunnar í Reykjavík sem hófst árið 2000.
Samstarfssamningur er milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Háskóla Íslands varðandi kennslu háskólanema í heilbrigðisfræðum. Ýmist eru það unglæknar eða læknar í sérfræðinámi í heimilislækningum. Auk þess koma á hverju ári læknanemar, hjúkrunarnemar og læknaritaranemar í verklegt nám á stöðina.
Ábendingar og athugasemdir
Þiggjum gjarnan ábendingar varðandi það sem betur má fara í þjónustu stöðvarinnar. Slíkar ábendingar eru ein af forsendum þess að við getum bætt þjónustu við íbúa hverfisins.
Vinsamlegast sendið ábendingar í tölvupósti
Ef upp koma hnökrar í samskiptum skjólstæðings og starfsmanns stöðvarinnar þá hvetjum við fólk til að ræða það fyrst við viðkomandi.
Ef skjólstæðingur treystir sér ekki til að leita til hans áfram þarf að bera upp erindið við yfirmenn stöðvarinnar og skýra málavöxtu.