Heilsugæslan Garðabæ, Garðatorgi 7 er opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 17:00.
Almenn afgreiðsla og tímapantanir í síma 520-1800.
Heilsugæslan Garðabæ er heilsugæslustöð sem veitir íbúum Garðabæjar almenna læknis- og hjúkrunarþjónustu. Í afgreiðslu Heilsugæslunnar taka móttökuritarar við tímapöntunum og gefa almennar upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar. Ef um bráðatilvik er að ræða má leita til Heilsugæslunnar án þess að gera boð á undan sér.
Auk hefðbundinnar tímabókunar í móttöku hjá heimilislæknum gefst kostur á að bóka tíma samdægurs í síðdegismóttöku sem hefst kl. 16:00 alla virka daga. Slíkri móttöku er ætlað að sinna bráðum, fljótleystum erindum sem þarfnast skjótrar úrlausnar, enda er viðtalstíminn styttri en venjulega eða tíu mínútur á mann. Dagvinnutími heilsugæslustöðva er frá kl. 8:00 til 16:00 og komugjöld eru hærri eftir kl. 16:00.
Síðdegismóttakan er lokuð 16. júni til 13.ágúst 2010.
Símaþjónusta lækna:
Símtal við lækni þarf að panta með því að hringja í síma 520-1800 fyrir kl. 9:30 á virkum dögum.
Endurnýjun lyfseðla í síma 520-1800 verður eingöngu afgreidd milli kl. 10:00 og 12:00 á virkum dögum.
Hjúkrunarfræðingar eru með móttöku alla virka daga frá kl. 8:00 til 15:00.
Á þeim tíma er alltaf hægt er að fá samband við hjúkrunarfræðing í síma með fyrirspurnir og bráðaerindi.
Rannsóknastofa er opin frá kl. 8:00 til 14:00.
Blóðprufur eru að jafnaði teknar milli kl. 8:00 og 9:00. Bóka þarf tíma hjá lífeindafræðingi.
Ef um bráð veikindi eða slys er að ræða er hægt að ná sambandi við lækni/hjúkrunarfræðing samdægurs og án fyrirvara. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Utan ofangreinds opnunartíma er bent á Læknavaktina, Smáratorgi 1, Kópavogi. sími 1770.
Yfirlæknir: Bjarni Jónasson
Yfirhjúkrunarfræðingur: Jóna Guðmundsdóttir
Skrifstofustjóri: Margrét Gunnarsdóttir
24.06.2010
Sumarlokun síðdegisvaktar
Síðdegisvakt heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu verður lokuð frá 16. júní til og með 15. ágúst.23.04.2010
Áhrif gosösku á heilsufar og viðbúnaður vegna öskufalls
Gosaska getur haft áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá öndunarfærum og augum. Hér eru tveir nýjir bæklingar með ráðleggingum til fólks þar sem öskufalls gætir.Bólusetningarátak gegn inflúensu A(H1N1)v, svínaflensu:
Panta þarf tíma í bólusetningu. Við hvetjum alla sem ekki hafa látið bólusetja sig að gera það sem fyrst.